Um Línuland
Línuland selur falleg myndverk fyrir heimilið, skrifstofuna, hesthúsið eða aðra staði sem gott er að prýða með veggjakonfekti.
Á bak við Línuland stendur Bryndís Fanný Halldórsdóttir. Hún sækir innblástur sinn í daglegt líf, náttúru og hughrif hverju sinni sem skilar sér í ólíkum stíl, tækni og útkomu sem á oft þann samnefnara að þar kemur penni við sögu - ásamt ráðlögðum dagsskammti af lífsgleði. Bryndís handteiknar allar myndir sem síðan eru fjölfaldaðar í misstórum upplögum. Þau verk sem koma í takmörkuðu upplagi eru árituð og númeruð.
Bryndís er alltaf opin fyrir spennandi verkefnum og tekur að sér sérpantanir fyrir þá sem vilja eitthvað einstakt og persónulegt fyrir sig eða til gjafar.