SKILMÁLAR & AFHENDING
SKILMÁLAR
Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum frá seljanda, Línuland (Bryndís Fanný Halldórsdóttir) til kaupanda. Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin.
Almennt
Línuland áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.
Sérpantanir
Allar fyrirspurnir skal senda á linulandart@gmail.com. Sérpöntunum er ekki hægt að skila.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Öll verð eru birt í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um villur. Línuland áskilur sér rétt til að fella niður pantanir og endurgreiða ef villur eru í verðum þegar pantað er.
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar eins fljótt og auðið er eftir að greiðsla hefur verið staðfest. Sé varan ekki til á lager mun Línuland hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Frí heimsending er í boði innan Akureyrar. Að öðrum kosti er pöntunum dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Línuland ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Línulandi til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Sendingarkostnaður
Línuland sendir óinnrömmuð verk innanlands. Sendingarkostnaður miðast við verðskrá Íslandspósts.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Vinsamlegast hafið samband við Línuland með spurningar.
Ef um sérpöntun er að ræða og rangar upplýsingar koma frá viðskiptavin og framleiða þarf efni aftur vegna þessa er það á ábyrgð viðskiptavinar og greiðir hann kostnað þess.
Ef upplýsist um galla í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara á kostnað Línulands eða endurgreiðslu ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.